Mannlegi þátturinn

Dagur Heyrnar, vegavinkill og Huldar lesandinn

Yfirvöld hafa áhyggjur af sífellt óhollara hljóðumhverfi fyrir börn, í skólum, leik og í frístundum. Ástæða er til skoða stöðu mála og fræða börn, ungmenni, kennara og aðstandendur um mikilvægi góðrar hljóðvistar og heyrnarverndar. Í gær var alþjóðlegur dagur Heyrnar og í síðustu viku var undirritaður þríhliða samstarfssamningur um innleiðingu fjarnáms í heyrnarfræði fyrir íslenska háskólanema. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Háskólinn í Örebro í Svíþjóð og Háskólinn á Akureyri hafa gert með sér samning sem gerir kleift bjóða upp á háskólanám í heyrnarfræðum í fyrsta sinn hér á landi. Kristján Sverrisson forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar kom í þáttinn í dag.

Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn við áhugaverða vegagerð, til dæmis vegi og brýr á Skeiðarársandi og hinn stórmerkilega „Plankaveg" vestur í Kaliforníu. Guðjón minnti svo hlustendur á fara öllu með gát hvar sem þeir ferðast.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var Huldar Breiðfjörð, rithöfundur og handritshöfundur og greinarformaður í ritlist við Háskóla Íslands. Við forvitnuðumst um hvað hann er gera þessa dagana og svo fengum við auðvitað vita hvaða bækur hann hefur lesið undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Huldar sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:

When We Cease to Understand the World e. Benjamin Lapatut

Endurminningar Annie Ernaux

GoatMan e. Thomas Thwaites

og svo höfundunum, Þórbergi Þórðarsyni, Brett Easton Ellis og Douglas Coupland.

Tónlist í þættinum:

Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson-Ólafur Haukur Símonarson)

Ég heyri svo vel / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarsson)

In the year 2525 / Zager and Evans

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

4. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,