• 00:05:29Sigtryggur Baldursson - föstudagsgestur
  • 00:24:42Sigtryggur Baldurss. - seinni hluti
  • 00:39:50Matarspjallið - espadrillur og sniglar

Mannlegi þátturinn

Sigtryggur Baldursson föstudagsgestu og espadrillur og sniglar í matarspjallinu

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var trymbillinn og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson. Hann hefur verið í fjölda hljómsveita, Þeym, Kukl, Sykurmolarnir, svo er það auðvitað hliðarsjálf hans Bogomil Font, sem sungið hefur sig inn í íslensku þjóðarsálina, bæði með Milljónamæringunum og Greiningardeildinni. En með síðastnefndu sveitinni var hann senda frá sér glænýtt lag af glænýrri plötu sem er væntanleg og við fengum heyra það í þættinum. En við ferðuðumst líka með honum fram og aftur í tíma, frá Babylon í New York í Kópavoginn. Á handahlaupum sagði hann okkur til dæmis frá hljómsveitinni Hattímas, knattspyrnuferlinum, tilurð Bogomil Font og miklu fleiru í þættinum í dag.

Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið og í dag voru það espadrillur, kjúklingar, sniglar og mátulega skítugir veitingastaðir sem voru ræddir.

Tónlistin í þættinum:

Sjóddu frekar egg / Bogomil Font og Greiningardeildin

Í faðmi dalsins / Haukur Morthens (Bjarni J. Gíslason, texti Guðmundur Þórðarson)

Gellur eru bestar / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Birt

29. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,