Mannlegi þátturinn

Streita um jólin, vinkill um Rauðhettu og Bjarni lesandinn

Við höfum annað slagið núna í desember verið með góða gesti sem hafa gefið góð ráð og hugleitt hvernig við getum lækkað spennustigið og hjálpað okkur hugsa um það sem skiptir mestu máli á aðventunni, njóta og einfalda hlutina eins og við getum. Ásta Arnardóttir jógakennari var hjá okkur í síðustu viku og í dag kom til okkar Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi frá Fyrsta skrefinu og við fórum yfir þessa streituvalda og hvað er hægt gera til vinna gegn streitu og kvíða.

Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði hann um aðventuævintýri, jólatilhlökkun og spurninguna um hvort sniðugt setja fram óvilhalla góðbókmenntaútgáfu af Rauðhettu og úlfinum, ómengaða af göllum menningarfortíðarinnar?

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Bjarni M. Bjarnason rithöfundur. Hann var senda frá sér nýja bók, Dúnstúlkan í þokunni. Við fengum hann til segja okkur aðeins frá henni og svo auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bjarni talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Gilgames kviða (súmerskt ljóð frá því u.þ.b. 2500 fyrir krist)

Júditar bók, sem er hluti af biblíunni, á milli gamla testamentsins og þess nýja

Drauma-Jói e. Ágúst H. Bjarnason

Kristnihald undir jökli e. Halldór Laxness

Tónlist í þættinum í dag:

Jólin eru hér / Sigurður Guðmundsson (Sigurður Guðmundsson og Bragi Valdimar Skúlason)

Whistling away the dark / Julie Andrews (Henri Mancini)

Someday At Christmas / Stevie Wonder (Bryan Wells & Ron Miller)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

18. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,