Mannlegi þátturinn

Grásleppan, Gefum íslensku séns og Svanhildur Óskarsd. lesandi vikunnar

Grásleppan hefur verið veidd og nýtt gegnum tíðina einkum og sér í lagi vegna gómsætra hrognanna sem eru eftirsótt víða um heim. Áður fyrr var aflanum stærstum hluta hent eftir hrognin höfðu verið hirt. Í seinni tíð hefur grásleppan til dæmis verið seld heilfryst til Kína þar sem hún þykir mikið lostæti. Spegill fortíðar - Silfur framtíðar er heiti á viðburði sem verður í Breiðfirðingarbúð á fimmtudaginn. Katrín Rut Bessadóttir, verkefnastjóri í HR er kynningastýra Grásleppunnar, og Eva María Hilmarsdóttir framkvæmdastýra Grásleppunnar komu í þáttinn í dag, en þær fara fyrir hópi kvenna sem hefur það markmiði sýna fram á vannýtta möguleika á grásleppu.

Stofnfundur félags um Gefum íslensku séns var haldinn á Ísafirði í síðustu viku. Samnefndu verkefni, Gefum íslensku séns, var hleypt af stokkunum árið 2023 og hefur það markmið auka vitund fólks í nærumhverfinu um hvað máltileinkun innflytjenda á íslensku felur í sér. Leitast er við virkja fólk til sinna hlutverki almannakennara, sem sagt snýr það ekki aðallega þeims sem eru læra íslensku, heldur frekar þeim sem kunna íslensku. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, aðjúnkt við og nýkjörinn stjórnarmaður í félaginu, var á línunni og sagði okkur frekar frá stofnfundinum, félaginu og verkefninu.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor á menningarsviði hjá Árnastofnun. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Svanhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Night Train to Lisbon e. Pascal Mercier

Blái pardusinn hljóðbók e. Sigrún Pálsdóttir

Barnæska e. Jona Oberski (þýð. Gyrðir Elíasson)

Hjálparsagnir hjartans e. Péter Esterházy (þýð. Jóna Dóra Óskarsdóttir)

Nafn rósarinnar e. (þýð. Thor Vilhjálmsson)

Ástin fiskanna, Tímaþjófurinn og fyrstu ljóðabækur Steinunnar Sigurðardóttur

Tónlist í þættinum:

Á sjó / Hljómsveit Ingimars Eydal (Don Wayne, texti Ólafur Ragnarsson)

Mamma gefðu mér grásleppu / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason)

Farmaður hugsar heim / Elly Vilhjálms og Raggi Bjarna (Þórunn Franz, texti Árelíus Níelsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

2. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,