Mannlegi þátturinn

Leiskólamál: Ekki bara pláss, heimildir.is og Sigurlín Bjarney lesandi vikunnar

Við sögðum í dag frá málþingi sem fór fram fyrir nokkru þar sem leikskólamál voru rædd og yfirskriftin var: Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi. Málþingið var hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og byggir á fagmennsku, þekkingu og skýrum gildum um réttindi barna, leik og vellíðan. Á sama tíma hefur umræða í samfélaginu í auknum mæli snúist um aðgengi, biðlista og rekstrarlegar áskoranir. Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs og Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent í menntunarfræðum ungra barna og formaður námsleiðar í leikskólakennarafræðum,komu í þáttinn í dag.

Við litum svo við á Þjóðskjalasafni Íslands og hittum fyrir Helgu Lilju Bergmann sem sýndi okkur vef Þjóðskjalasafnsins þar sem hægt er finna ótrúlega margt, s.s. á slóðinni www.heimildir.is þar sem finna t.d. gamlar kirkjubækur. Safnið fær margar beiðnir í viku frá fólki sem vill finna heimildir en er t.d. búið skanna inn allar gamlar kirkjubækur fram til 1960-70 svo hægt leita í þeim uppá eigin spýtur.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum var svo Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari og rithöfundur. Við fengum hana til segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigurlín talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Þúsund og einn hnífur og fleiri sögur frá Írak e. Hassan Blasim í þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar

Þríleikur (Things I don't want to know, The cost of living og Real estate) e. Deborah Levy

The white road:Journey into an obsession e. Edmund de Waal

Mountains of the mind: A history of fascination e. Robert MacFarlane

Biblían, Þórarinn Eldjárn, Vigdís Grímsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Tomas Tranströmer

Tónlist í þættinum í dag:

Hvar er tunglið / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason)

Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson)

Töfrar / Silfurtónar (Júlíus Heimir Ólafsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

4. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,