Mannlegi þátturinn

Að kunna að hlaupa hægt, hlustunarvenjur frá 1947 og Júlíus lesandi vikunnar

Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 73 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn tvisvar. Hann á einnig Íslandsmetið í 100 km hlaupi. Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Arnar kom í þáttinn í dag, en hann segir allt hægt ef maður kann fara nógu hægt.

Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar í dag með gullmola úr safni útvarpsins. Í þetta sinn leyfði hún okkur heyra upptöku frá árinu 1947 úr tónlistarþætti í umsjón Jóns Þórarinssonar, þar sem hlustendum er kennd listin hlusta á útvarp, þar er talað um góðar og slæmar hlustunarvenjur í ýmislegt fleira til bæta hlustunarupplifun. Mjög áhugaverður bútur sem við heyrðum og Helga Lára sagði okkur betur frá í þættinum.

Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Júlíus Ó. Einarsson, en hann var senda frá sér nýja bók sem heitir Í framlínu - lögreglumenn segja frá. Hann tók viðtöl við tugi lögreglumanna, sem segja frá reynslu sinni, upplifun af starfinu í bókinni. Við fengum hann til segja okkur frá þessari bók, en svo auðvitað aðallega frá þeim bókum sem hann hefur verið lesa undanfarið og þeim höfundum og bókum sem hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Júlíus talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Hollendingurinn fljúgandi e. Frederick Marryat

Konungs skuggsjá, höf. ókunnur

A short History of the World according to Sheep e. Sally Coulthard

Prisoners of Geography e. Tim Marshall

The Story of Russia e. Orlando Figes

Enid Blyton

Tónlist í þættinum í dag:

Vertu ekki kvarta / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Kormákur Bragason)

Ég skal syngja fyrir þig / Björgvin Halldórsson (G. Sklerov & Phyllis Molinary, texti Jónas Friðrik Guðnason)

Words / Bee Gees (Maurice, Robin og Barry Gibb)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

13. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,