Mannlegi þátturinn

Helgi Björns og Ísafjörður,Guðmundur Pétursson og blúshátíð og Edda Olgudóttir

MANNLEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2026

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Páskahelgin er á næsta leyti og margir sem verða á faraldsfæti. Sumir fara í sumarbústað, aðrir til útlanda og svo eru margir sem fara vestur Ísafjörð, þar sem fram fer skíðavika og auðvitað tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Við ætlum tala við skíðagarp, frá Ísafirði sem margoft hefur troðið upp á þessari ágætu hátíð fyrir vestan - þó hann hafi sig hægan núna um páskana. Helgi Björnsson tónlistarmaður kom til okkar.

Blúshátíð í Reykjavík er í gangi yfir páskana eins og undanfarin ár og áratugi

Hátíðin verður í sínum stað á Hilton Reykjavík Nordica og á dagskránni eru bæði erlendar og innlendar blússtjörnur og lokinni formlegri dagskrá verður Klúbbur Blúshátíðar þar sem tónleikagestir geta notið lifandi tónlistar í afslöppuðu umhverfi. Guðmundur Pétursson kom til okkar hér á eftir.

Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í lok þáttar í sitt reglubundna vísindaspjall. Hún ætlar fjalla um nýjar rannsóknir á rafrettum og níkótíninntöku. Og okkur skilst þetta séu ekki alslæmar fréttir sem hún ætlar færa okkur í dag.

Tónlist í þættinum í dag:

Blús í G/Mannakorn(Magnús Eiríksson)

Allt ljómar/Helgi Björnsson

Ég trúi á þig/Múgison og Blúskompaníið

Birt

1. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,