Mannlegi þátturinn

Nýjar fjármögnunarleiðir í íbúðakaupum, frásögn Sigurður frá 1947 og Auður lesandi vikunnar

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn í dag og við skoðuðum með honum nýtilkomnar leiðir sem eru í boði í íbúðarkaupum þar sem til dæmis byggingafyrirtæki, verktakar eða fjármálaþjónustur bjóða fólki upp á leggja t.d. einungis fram 10% af kaupverði, seljandinn, eða annar aðili, leggja til allt 20% og svo eru þá 70% húsnæðislán. Neytendasamtökin segja þessir samningar séu varhugaverðir og óljósir, þar sem ekki búið kanna frá öllum hliðum lögmæti þeirra og hver raunveruleg staða kaupend sé. Breki fór yfir þessi mál hjá okkur í dag.

Við héldum svo áfram grúska í safni Ríkisútvarpsins með Helgu Láru Þorsteinsdóttur safnstjóra og í dag kom hún með frásögn Sigurðar Helgasonar, tónskálds frá Blaine Washington, sem var tekin var upp árið 1947 þegar hann var nýkomin aftur til Reykjavíkur eftir 57 ára dvöl í vesturheimi, en hann fór frá Íslandi 1890. Stórmerkileg upptaka og frásögn þar sem hann til dæmis talar um framfarir og breytingar sem hafa orðið í Reykjavík og margt fleira.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var Auður Þórhallsdóttir barnabókahöfundur. En hún er einmitt nýbúin gefa út fjórðu bókina um Miðbæjarrottuna. Við spurðum hana aðeins út í hana og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Auður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Einsamræður e. Birtu Ósmann

Snyrtistofan e. Mario Bellatin

Þessir djöfulsins karlar e. Andrev Walden

Móðurást- sólmánuður e. Kristínu Ómarsdóttur

En hvað það var skrýtið e. Pál. J Árdal

Alkemistinn e. Paulo Coelho

Minningarbók e. Vigdísi Grímsdóttur

Tónlist í þættinum í dag:

Skítaveður / Bogomil Font og Greiningadeildin (Bragi Valdimar Skúlason)

Pínu sein / GDRN og Tómas R. Einarsson (GDRN og Tómas R. Einarsson)

Skín við sólu Skagafjörður / Liljukórinn (Sigurður Helgason, texti Matthías Jochumsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

23. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,