• 00:06:22Heimsókn á Þjóðskjalasafnið - Jón Torfi Arason
  • 00:30:33Óttarr Proppé - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Um Vargfélagið af Þjóðskjalasafninu og Óttarr Proppé lesandi vikunnar

Heimsókn á Þjóðskjalasafnið sem var fastur dagskrárliður í Samfélaginu eftir hádegi á Rás 1 er komin til okkar í Mannlega þáttinn. Annan hvern mánudag förum við í heimsókn á safnið og fáum fræðast um áhugaverða hluti af safninu, þar er úr nógu moða og gríðarlegt magn af áhugaverðu efni sem þau munu kynna fyrir okkur. Í dag hittum við skjalavörðinn Jón Torfa Arason sem blaðaði í gegnum vel gulnuð skjöl frá 19.öld þar sem verið er fjalla um flugvarga og vargfélagið. Jón Torfi sagði okkur meira um það í dag.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Óttarr Proppé. Óttarr hefur borið marga titla í gegnum tíðina, hann er fyrrverandi bóksali, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, fyrrverandi borgarfulltrúi, rokksöngvari, júróvisjónfari og margt fleira. En hann kom sjálfsögðu í þáttinn til segja okkur frá því hvað hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Óttarr talaði um eftirfarandi bækur

Taumhald á skepnum e. Magnus Mills

Dyngja e. Sigrúnu Pálsdóttur

Pálmavínsdrykkjumaðurinn e. Amos Tutuola

Heyrt og séð erlendis - garðyrkjumaður segir frá e. Guðmundur Jónsson

Haruki Murakami

Tónlist í þættinum í dag:

Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)

Poor Boy / Nick Drake (Nick Drake)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

2. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,