Mannlegi þátturinn

Daði Freyr föstudagsgestur og matarspjallið um sænskar kjötbollur

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Daði Freyr Pétursson tónlistarmaður. Þjóðin kynntist honum fyrst í Söngvakeppninni og svo fór hann auðvitað fyrir Íslands hönd í Eurovision keppnina og hefur síðan samið og framleitt tónlist undir eigin nafni og farið í tónleikaferðir víða um heim. Hann er nýfluttur aftur til landsins eftir hafa búið í ellefu ár erlendis, en fjölskyldan býr í Hveragerði. Við fórum með Daða Frey aftur í tímann og svo fram og til baka í tíma og rúmi til dagsins í dag en hann er nýbúinn gefa út nýja plötu sem komin er á allar streymisveitur og er væntanleg til landsins á vínilplötum. Við fengum heyra tvö lög af nýju plötunni.

Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, þar héldum við áfram grúska aðeins í Eldhúsbókinni gömlu og svo var það Svíþjóð sem átti sviðið, sænskt eldhús og kjötbollur.

Tónlist í þættinum í dag:

Lítill drengur / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmson

With You / Daði Freyr (Daði Freyr og Ásdís María Viðarsdóttir)

I’m Out and I Want to Home / Daði Freyr (Daði Freyr og Simon Alexander Ward)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

15. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,