Mannlegi þátturinn

Björgvin Franz, vinkill og María Hjálmtýsd. lesandinn

Okið undan sjálfum mér er hreinskilinn fyrirlestur þar sem leikarinn Björgvin Franz Gíslason lýsir því hvernig hann náði breyta eigin vinnubrjálæði yfir í innri og raunverulega starfsánægju, eins og hann orðar það sjálfur. Hann veltir því upp hvernig maður nær þeim árangri verða betri starfskraftur með því eyða færri klukkustundum í vinnunni en meiri tíma með fjölskyldu og vinum. Aðferðirnar sem Björgvin styðst við hafa verið notaðar til þjálfa afreksíþróttafólk og forstjóra stærstu fyrirtækja heims til öðlast betri árangri í sínu fagi sem og í lífinu. Björgvin Franz kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu í dag.

Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn velti hann fyrir sér afleiðingum eldgoss á Suðurnesjum auk þess sem hleðslustöðvar fyrir rafbíla og umgengni við þær svolitla athygli, og Eyvör Pálsdóttir, þó ekki söngkonan.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari og barnabókasafnari. Við fengum vita hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. María talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Bold fjölskyldan í klípu e. Julian Clary Serótónínendurupptökuhemlar e. Friðgeir Einarsson

Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg e. Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur

Ten Steps to Nanette e. Hannah Gadsby

Backlash e. Susan Faludi

Angry White Men e. Michael Kimmel.

Kapítóla eftir E.D.E.N. Southworth.

Tónlist í þættinum í dag:

Relax / Trúbrot (Gunnar Þórðarsson, Magnús Kjartansson og Rúnar Júlíusson)

Myndin af þér / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Bob Russel, texti Iðunn Steinsdóttir)

Take me home country roads / John Denver

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

12. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,