Mannlegi þátturinn

Gunnlaugur keppir á US Open, Rjúfum mynstrið og vísindaspjallið

Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til keppa á risamóti karla. Gunnlaugur Árni, sem er einungis tvítugur, er gríðarlegt efni. Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands, kom í þáttinn og útskýrði fyrir okkur í dag hversu stórt það er komast inn á þetta mót og hverju það skiptir fyrir Gunnlaug Árna og íslenskt golf.

vitundarherferð er í gangi til styrktar Kvennaathvarfinu undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Rúmlega fimm þúsund manns hafa sótt prjónauppskriftina prjónapeysunni Skjól sem Tinna Laufdal hannaði í samstarfi við Kvennaathvarfið og garn er seljast upp í verslunum og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður víða um land. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra kom í þáttinn í dag einmitt í einni útgáfu af peysunni Skjól.

Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið, eins og hún hefur gert á miðvikudögum í vetur. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum á collageni sem fæðubótaefni.

Tónlistin í þættinum:

Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)

Ó borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti)

Ástrós / Bubbi Morthens og Bríet (Bubbi Morthens)

Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

10. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,