Mannlegi þátturinn

LEB skorar á stjórnmálin, árangursrík starfsmannaviðtöl og vatnslitahátíð á Akureyri

Stjórnmálin verða svara þeim sem minnst hafa. Þetta er fyrirsögn greinar sem Björn Snæbjörnsson, formaður Landsambands eldri borgara, skrifaði. Hann segir það kominn tími til stjórnmálamenn hætti tala um eldri borgara sem einsleitan hóp, því þeir eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur þar sem sumir búa við ágæt kjör en aðrir þurfa snúa hverri krónu og hafa verulegar áhyggjur af því endum saman. Um 8.000 eldri borgarar eru með heildartekjur undir lægsta taxta á vinnumarkaði þrátt fyrir hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins alla sína ævi. Björn kom í þáttinn í dag ásamt Oddnýju Árnadóttur, framkvæmdastjóra LEB, og þau fóru yfir stöðuna með okkur.

Flest okkar sem eru á vinnumarkaði þurfum taka starfsmannaviðtöl við starfsfólk og/eða yfirmenn og flestir gera þetta reglulega, td einu sinni á ári. Það er hægt fara á námskeið í eiga árangursríkt starfsmannaviðtal. Inga Þórisdóttir stjórnendaþjálfi er með hvorki meira minna en þrjár gerðir af slíkum námskeiðum. Við heyrðum í henni í dag.

Í lok þáttar tengdumst við við Ragnar Hólm Ragnarsson, þar sem hann var staddur í hljóðveri RÚV á Akureyri. En Ragnar stýrir Vatnslitahátíð Íslands sem hefst á Akureyri á fimmtudaginn, en þegar er uppselt á hana. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins, innlendum og erlendum, þar á meðal fimm heimsþekktir listamenn sem hafa helgað ævistarf sitt vantslitum. Ragnar sagði okkur betur frá vatnslitum og hátíðinni í þættinum.

Tónlist í þættinum í dag:

Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson)

My Friend and I / Trúbrot (Magnús Kjartansson, texti Jóhann Hjálmarsson, þýðandi Rúnar Júlíusson)

When the Rain Has Gone / Unni Birna Björnsdóttir (Unnur Birna Björnsdóttir og Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Unnur Birna Björnsdóttir)

Yes sir I can boogie / Baccara (Rolf Soja & Frank Dostal)

Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

8. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,