• 00:06:40Stella í orlofi fertug! Sólveig, Thelma og Hildur
  • 00:21:16Agnar Már - bleikur djass
  • 00:35:52Jónatan Garðarss. um Henna Rasmus

Mannlegi þátturinn

Stella í orlofi fertug, Bleikur jazz og Jónatan um Henna Rasmus

Í næsta mánuði verður blásið til afmælisveislu í Salnum í Kópavogi í tilefni þess að fjörutíu ár eru frá því kvikmyndin Stella í orlofi var frumsýnd. Stella er fertug! Þessi bráfyndna mynd hefur fylgt þjóðinni í fjóra áratugi og ósjaldan er gripið í óborganlegar setningar úr myndinni eins og „ Boðið er búið, Bára er komin í bleyti og majónesan er orðin gul“, Lionsklúbburinn Kiddi með berjatýnurnar til sölu og „Fru Stella, veskan min er horfin“ og margar fleiri. Við rifjum upp þessa dásamlegu mynd hér á eftir í tilefni afmælisins. Sólveig Arnarsdóttir leikkona, sem var aðeins 13 ára þegar hún lék í myndinni, kom í þáttinn ásamt Hildi Berglindi Arndal og Thelmu Marín Jónsdóttur.

Það er Bleikur október og á sunnudaginn verða tónleikar sem nefnast Bleikur Jazz þar sem allur aðgangseyrir mun renna til Ljóssins, endurhæfinga- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Það verður Agnar Már Magnússon jazzpíanóleikari sem leiðir tónleikana í Vídalínskirkju en þar er hann nýtekin við starfi organista. Við ræddum við Agnar um nýja starfið og umfang þess og hvernig það er að færa sig af flyglinum yfir á orgelið.

Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var komið að lagahöfundinum Henna Rasmus, hann samdi fjölda laga og er líklega þekktastur fyrir lagið Viltu með mér vaka. Jónatan sagði okkur frá ferli Henna í þættinum.

Tónlist í þættinum í dag:

Ferðalangur til frambúðar / Stefán Hilmarsson (Stefán Örn Gunnlaugsson, texti Friðrik Sturluson)

Stella í orlofi / Diddú (Valgeir Guðjónsson)

Órar/Agnar Már Magnússon(Agnar Már Magnússon)

Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, ljóð Tómas Guðmundsson)

Viltu með mér vaka / Lummurnar (Henni Rasmus, texti Valborg Bentsdóttir)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,