• 00:04:29Hörður Magnússon föstudagsgestur
  • 00:21:17Hörður Magnússon - seinni hluti
  • 00:36:45Matarspjallið - HM snakk?

Mannlegi þátturinn

Hörður Magnússon föstudagsgestur og köld tómatsúpa í matarspjallinu

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon. Hann er einn þeirra sem lýsir leikjunum á HM sem hófst í gærkvöldi. Hann var sjálfur mikill markaskorari fyrir FH á löngum ferli og spilaði einnig með A landsliðinu. Hann hefur verið íþróttafréttamaður í um það bil þrjátíu ár og lýsir íþróttakappleikjum af mikilli innlifun. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum, upphaf knattspyrnuferilsins, hvernig það kom til hann fór vinna í íþróttafréttamennskunni, ást hans á tónlist og margt fleira.

Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Köld spænsk tómatsúpa er kælandi í sumarhitanum , við kíktum á uppskrift einni slíkri og flettum svo í Eldhúsbókinni góðu einu sinni sem oftar.

Tónlistin í þættinum:

Eitt lag enn / Brimkló og Björgvin Halldórsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson)

Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti)

Ripples / Genesis (Mike Rutherford, Phil Collins, Steve Hackett & Tony Banks)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

12. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,