• 00:06:39Haukur Holm - föstudagsgestur
  • 00:24:20Haukur Holm - seinni hluti
  • 00:41:07Matarspjallið - snittubrauð

Mannlegi þátturinn

Haukur Holm föstudagsgestur og matarspjall um snittubrauð

Haukur Holm fréttamaður, öllu heldur fyrrverandi fréttamaður, hefur yfir 40 ára reynslu á þeim vettvangi en er hættur, nýorðin sjötugur. Haukur vann lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þar áður meðal annars á Alþýðublaðinu, Vikublaðinu Reykjavík og síðast hér á fréttastofu RÚV. Við fórum auðvitað aftur í tímann með Hauki, á æskuslóðirnar og upphaf fréttamannaferilsins, til dæmis viðtal hans við Leonard Cohen, sem var hans fyrsta verkefni í faginu.

Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað og í dag skoðuðum við aðeins Eldhúsbókina og svo gáfum við snittubrauðinu gaum, hvernig á baka það og margvíslegum notagildum þess.

Tónlist í þættinum í dag:

Vorátak / Söngflokkurinn í Mosfellsbæ, Diddú, Hafdís Huld o.fl. (Thorbjörn Egner, texti Hafdís Huld)

Banger / Virgin Orchestra (Stefanía Pálsdóttir, Rún Árnadóttir og Starri Holm, texti Stefanía Pálsdóttir)

Democracy / Leonard Cohen (Leonard Cohen)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

24. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,