Mannlegi þátturinn

Vernd mannlegra innviða, ungir aðstandendur og plastmengun

Vernd mannlegra innviða á Reykjanesi er nafnið á pistli sem Diljá Ámundadóttir Zoega skrifaði á visir.is. Hún er með diplómu á meistarastigi í sálgæslufræðum og hefur mikið skoðað áföll og samfélagsleg áföll. Í greininni er hún velta fyrir sér stöðunni á Reykjanesi, þar sem til dæmis hefur verið samþykkt frumvarp á Alþingi um vernd innviða á Reykjanesi. Diljá bendir á það þurfi líka huga vernd mannlegra innviða á Suðurnesjum. Því það sem til dæmis íbúar Grindavíkur eru ganga í gegnum samfélagslegt áfall og það þurfi hjálpa þeim vinna úr afleiðingum þess. Diljá útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum.

vera barn, systkini, vinur eða náinn aðstandandi krabbameinsgreinds einstaklings getur verið mikil áskorun fyrir fólk. Hvað þá þegar maður er unglingur með öllu sem því tilheyrir. Þetta getur margt úr skorðum og eðlilegt spurningar vakni og hvaða tilfinningar er eðlilegt vera glíma við. Kraftur og Bergið Headspace ætla sameina krafta sína og bjóða ungmennum á aldrinum 14 til 20 ára upp á koma og ræða hvernig er vera aðstandandi krabbmeinsgreinds einstaklings á morgun í húsnæði Krafts Skógarhlíð 8. Guðlaug Ragnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Krafti kom í þáttinn.

Jóhanna Vilhjálmsdóttir kom svo í Heilsuspjallið og í dag talaði hún um plast og plastmengun. Það er plast allstaðar í kringum okkur, í umhverfinu og í matnum og þessar öragnir finnast orðið í nánast öllu.

Tónlist í þættinum í dag:

Tondeleyo - Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guðmundar Ingólfssonar (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson)

Ég nefni nafnið þitt / Kristjana Arngrímsd (Kristjana Arngrímsdóttir og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi)

Húsin í bænum / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson og Tómas Guðmundsson)

Oddaflug / Hildur Vala (Hildur Vala)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

21. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,