• 00:05:16Anna og Þórunn - leikhópurinn Lotta tuttugu ára
  • 00:21:32Heilsuvaktin - Guðbrandur Árni - bók um ástina

Mannlegi þátturinn

Leikhópurinn Lotta tuttugu ára og Guðbrandur Árni á Heilsuvaktinni

Leikhópurinn Lotta heldur upp á tuttugu ára afmælið í ár og sýning hópsins í sumar er Litaland sem segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig. Anna Bergljót Thorarensen er höfundur verksins og jafnframt stofandi leikhópsins. Hún kom í þáttinn í dag ásamt öðrum af tveimur leikstjórum, Þórunni Lárusdóttur.

Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Hvað einkennir heilbrigð og langlíf ástarsambönd og hvenær verða þau óheilbrigð? Hvaða máli skipta tengslin og nándin sem við fáum í æsku fyrir ástarsambönd okkar á fullorðinsárum og hvernig getur það komið fram á neikvæðan hátt ef örugg tengsl og nánd hafa ekki verið til staðar. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur leitast við svara þessum spurningum og fjölmörgu öðru um ástina í nýútkominni bók sinni Í augum þínum verð ég til. Helga ræddi við Guðbrand á Heilsuvaktinni í tilefni af því.

Tónlistin í þættinum:

Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)

Hver er hann? / Leikhópurinn Lotta, Rósa Ásgeirsdóttir (Baldur Ragnarsson, texti Sævar Sigurgeirsson)

Ósvikin ást / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

2. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,