Mannlegi þátturinn

Crohns og sáraristilbólga, efni af Þjóðskjalasafni og Pétur Már lesandi vikunnar

Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er á morgun 19.maí. Talið er yfir 10 milljónir, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. Á Íslandi hefur tíðnin aukist mikið frá 1950 og nýgengi sáraristilbólgu á Íslandi er u.þ.b. 22 á hverja 100.000 íbúa sem er með því hæsta í heiminum. Í ár vekja samtökin athygli á því það á ekki vera neitt feimnismál tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum og mjög mikilvægt eyða öllum fordómum. Hjalti Þór Davíðsson kom til okkar í dag en hann tekur þátt í vitundarvakningunni fyrir CCU samtökin, sem stendur fyrir Crohn’s og Colitis Ulcerosa, eða sáraristilbólgu.

Svo fórum við í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og fengum Ólaf Arnar Sveinsson, sviðsstjóra miðlunar og rannsókna þar á bæ, til segja okkur frá sakamáli, svokölluðu dulsmáli, frá árunum 1832-33 í Tálknafirði á Vestfjörðum.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Pétur Már Gunnarsson, myndlistar- og garðyrkjumaður. Við fáum hann til segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Pétur Már talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Frjáls e. Lea Ypi

Nói bátasmiður - Lífshlaup Nóa skráð af Erlingi Davíðssyni

Sorgin í fyrstu persónu e. Ko Un í þýðingu Gyrðis Elíassonar

Tokyo-Montana hraðlestin e. Richard Brautigan

Daníil Kharms og Brautigan

Tónlistin í þættinum:

Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)

Fegurðin svo hrá / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)

He’ll Always Know / Elísabet Eyþórsdóttir ( Elísabet Eyþórsdóttir)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

18. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,