• 00:05:16Jakob og Karl - MH 60 ára
  • 00:27:03Anna Kolfinna - feðgar og feðgin dansa
  • 00:40:26Edda Olgud. - vísindaspjall um heilarannsóknir

Mannlegi þátturinn

Leyft öllum aldurshópum

Jakob og Karl um 60 ára afmæli MH, Pabba Reif, vísindaspjallið um heilann

Þann 24. september 1966 var Menntaskólinn við Hamrahlíð settur í fyrsta skipti og árið 1972 var hann fyrsti skólinn til að taka upp áfangakerfi. 60 ára afmæli skólans verður fagnað svo um munar næsta laugardag með dagskrá frá morgni til kvölds. Ofursveit skólans mun koma fram, Hamraskáld að fornu og nýju lesa úr verkum sínum, boðið verður uppá gönguleiðsögn um skólann og margt fleira. Tveir fyrrverandi nemendur og nú meðlimir í Ofursveit MH, Jakob Frímann Magnússon og Karl Sigurðsson Baggalútur komu í þáttinn í dag.

Pabba Reif er heitið á nýju dansverki sem frumsýnt verður eftir áramót í Tjarnarbíói. Aðstandendur sýningarinnar auglýsa nú eftir þáttakendum fyrir verkið, en leitað er eftir feðrum og ungmennum, sem munu svo dansa saman í sýningunni. Í kynningartexta segir að í verkinu munu feður fá tækifæri til að tengjast ungmennum sínum í gegnum dans og tónlist. Anna Kolfinna Kuran sagði okkur betur frá þessu verkefni og opnum danstíma á sunnudaginn í Dansverkstæðinu á Hjarðarhaga á sunnudaginn, en hún er danshöfundur verksins.

Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að heilinn hafi tvo mismunandi uppruna í fósturþroska. Þessi vitneskja auðveldar vísindahópum sem eru að rannsaka sjúkdóma í heilastofninum, en heilastofninn á líklega uppruna sinn í öðrum stofnfrumum en t.a.m. framheilinn. Edda útskýrði þetta betur í þættinum.

Tónlist í þættinum:

Við arineld / Erla Stefánsdóttir (Magnús Eiríksson, texti Kristján frá Djúpalæk)

10 dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason)

Eldur / Gissur Páll (Sveinn M Sveinsson, texti Steinn Steinarr)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,