• 00:05:33Benedikt Erlingsson - föstudagsgestur
  • 00:38:04Matarspjallið - nostalgía og sakbitin sæla úr æsku

Mannlegi þátturinn

Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og nostalgískt matarspjall

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikstjórinn og leikarinn Benedikt Erlingsson. Eftir hafa leikið og leikstýrt á leiksviði við góðan orðstír söðlaði hann um og færði sig yfir í kvikmyndirnar og það er óhætt segja kvikmyndirnar hans hafi aukið við orðstírinn, Hross í oss, Kona fer í stríð og svo var sjötti og síðasti þáttur Dönsku konunnar sýndur á sunnudagskvöldið, en Benedikt leikstýrði þáttaröðinni og skrifaði hana ásamt Ólafi Agli Egilssyni. Við fórum með Benedikti yfir þetta allt saman, fengum vita hvar rætur hans liggja, hver var hans lærifaðir sem spilaði lykilhlutverk í því hann fór leikstýra og svo auðvitað Dönsku konuna.

Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag töluðum við um matarvenjur úr æsku, bæði sem hafa fylgt okkur til dagsins í dag, en líka þeirra sem við höfum snúið baki við. Sumt af því er sakbitin sæla, sumt er bara nostalgía, minnsta kosti fylgja þeim öllum minningar.

Tónlist í þættinum í dag:

Smuk som et stjerneskud / Trine Dyrholm (Jørgen Olsen)

Glor vinduer / Trine Dyrholm (Anne Linnet)

UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

6. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,