Mannlegi þátturinn

Aðgengi hjólastóla, vinkill og Sólveig Auðar lesandinn

Við huguðum aðgengismálum í upphafi þáttar þegar Akureyringurinn Sigrún María Óskarsdóttir kom í spjall til okkar. Sigrún María notar hjólastól og hún lenti í óskemmtilegri reynslu á milli jóla og nýjars þegar hún ákvað skella sér í bíó. Þegar þangað var komið var hjólastólalyftan í bíóinu biluð og þá tóku við ýmiskonar vandræði. Sigrún María sagði betur frá þessari upplifun sinni í þættinum og hún ræddi líka um hjólastólaaðgengi sérstaklega fyrir norðan.

Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Undir vinklinum í þetta skipti lenda nokkrar jólabækur, líka ævintýri frá Finnlandi auk þess sem umsjónarmaður stendur sig því vera örlítið farinn hlakka til þess komast á Þorrablót.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var Sólveig Auðar Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur. Við fengum vita hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og svo auðvitað hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sólveig talaði um eftirafarandi bækur og höfunda:

The Great Alone e. Kristin Hannah

The Bee Sting e. Paul Murray

North Woods e. Daniel Mason

The Goblin Emperor e. Catherine Addison

Neverwhere e. Neil Gaiman

Ævintýrið e. Vigdísi Grímsdóttir

Tónlist í þættinum í dag:

Í löngu máli / Una Torfadóttir (Una Torfadóttir)

Come Down Easy / Carole King (Carole King og Toni Stern)

Eldar minninganna / Ellý Vilhjálms, Svanhildur Jakobsdóttir og Einar Hólm (lag Mason & Carr, texti Benedikt Axelsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Frumflutt

8. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,