• 00:07:26Andri Snær - heimildarmyndin Time and Water
  • 00:38:17Dr. Gunni - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Andri Snær og nýja myndin og Dr. Gunni lesandi vikunnar

Andri Snær Magnason er nýkominn til landsins eftir hafa fylgt eftir heimildarmyndinni Time and Water, sem gerð er upp úr bók hans Um tímann og vatnið. Myndin hefur verið sýnd til dæmis á Sundance kvikmyndahátíðinni og vakti mikla athygli. Við fengum Andra til segja okkur frá myndinni og hvernig hún kom til og hver væri munurinn á henni og bókinni. Svo tókum við aðeins með honum stöðuna í loftslagsmálum, því það er auðvitað það sem Andri skrifaði um í bókinni, sem kom út árið 2019, þar sem hann notaði sögur af forfeðrum sínum og ættingjum til þess fjalla um loftslagsvísindin og þær breytingar sem eru verða sem hafa áhrif á allt líf á jörðinni. Við ræddum hvernig umræðan hefur breyst undanfarnið, til dæmis þegar Bandaríkjastjórn hefur afturkallað ákvaraðnir um hættu vegna gróðurhúsalofttegunda.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Við fengum hann til segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Einn, tveir þrír, fjór... Bítlarnir í tímanna rás e. Craig Brown (Þýð. Helgi Ingólfsson)

Tune in e. Mark Lewisohn

Ævisögur Charles Mingus, Thelonious Monk og Chet Baker

Bækur Braga Ólafssonar, Braga Páls Sigurðsson og Ólaf Gunnarsson

Kokkáll e. Dóra DNA

Bjarmalönd e. Val Gunnarsson

Reyndu aftur, ævisaga Magnúsar Eiríkssonar e. Tómas Hermannsson

Boy on Fire um Nick Cave e. Matt Mordue

The Big Midwwk, Life inside the Fall e. Steve Hanley

Tónlist í þættinum í dag:

Frost / Pálmi Gunnarsson og Ragnheiður Gröndal (Pálmi Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Stefán Örn Gunnlaugsson)

Frostrósir / Haukur Morthens (Freymóður Jóhannsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

16. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,