• 00:07:31Elvar Þormarsson - í hesthúsinu
  • 00:23:27Vinkill um matarhefðir - Guðjón Helgi
  • 00:36:09Gústav Adolf - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Knapi ársins, vinkill um matarhefðir og Gústav Adolf lesandinn

Við hófum Mannlega þáttinn þessu sinni á slá á þráðinn til hestamanns á Hvolsvelli og forvitnast um hvaða verkefni eru efst á baugi í hesthúsinu um þessar mundir. Er búið taka inn, hvað eru margir hestar á húsi, hvenær þarf moka út og gefa og hvaða stóru viðburðir eru framundan hjá hestafólki? Á línunni til svara var nýkrýndur knapi ársins og tamningamaðurinn Elvar Þormarsson.

Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn skoðaði hann matarhefðir, íslenskar og erlendar, sem hann hefur kynnst í gegnum lífið og hvaðan þær koma.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, doktorsnemi í heimsspeki. Það eru reyndar ekki nema 5 dagar í doktorsgráðuna, en hann ver doktorsritgerð sína næstkomandi föstudag í Háskóla Íslands. Hann sagði okkur svo auðvitað frá því hvað hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gústav talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

It's lonely at the end of the world e. Zoe Thorogood

Prophet song e. Paul Lynch

Um sársauka annarra e. Susan Sontag

Can the monster speak? e. Paul Preciado

Dhammapada e. Buddha

og svo Frank og Jóa seríuna e. Franklin W. Dixon

Tónlist í þættinum í dag:

Milli gærdags og á morgun / Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson (Árni Ísaksson og Michel Legrand)

Ríðum sem fjandinn / Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna (höf. Ókunnur)

Never Loved Someone So Much / Klemens Hannigan (Klemens Hannigan, Leifur Björnsson og Howie B.)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Frumflutt

19. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,