Mannlegi þátturinn

Davíð, Jónmundur og Unnsteinn föstudagsgestir og matarspjall á frönskum nótum

Föstudagsgestir Mannlega þáttarins voru þrír í þetta sinn, Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson, en þeir voru frumsýna glænýtt leikrit á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi, Gæðablóð, sem þeir sömdu ásamt leikstjóra sýningarinnar Þóru Karítas Árnadóttur. Þeir eiga það sameiginlegt vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Í sýningunni deila þeir sögum úr lífi sinni og reynslu sinni af því alast upp sem litaðir Íslendingar. Það var standandi lófatak og fagnaðarlæti í lok sýningarinnar, enda er hún bráðskemmtileg, fyndin og snertir við áhorfendum. Við áttum skemmtilegt spjall við þá þremenninga í þættinum og eltum svo þræðina þangað sem þeir leiddu okkur.

Svo kom Sigurlaug Margrét í matarspjallið, eins og alla föstudaga, við héldum aðeins áfram með grjónaumræðuna, við fengum viðbrögð frá hlustendum sem frú Sigurlaug fór aðeins yfir. Og svo fletti hún í franskri matreiðslubók og talaði um eggjabrauð, eins og ýmsir kalla það og í lokin fór Guðrún yfir það hvernig maður þeytir smjör og bakar einfalt brauð.

Tónlist í þættinum:

Lífsgleði / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)

Glow / Retro Stefson (Unnsteinn Manuel Stefánsson)

Skin / Retro Stefson (Retro Stefson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

13. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,