Mannlegi þátturinn

Klínísk næringafræði, Tónlistarskóli Akureyrar 80 ára og vísindaspjallið

Við kynntum okkur störf klínískra næringafræðinga í dag, en þeir vinna með fólki á öllum aldri, frá börnum til aldraðra, bæði heima fyrir og á hjúkrunarheimilum og heilbrigðisstofnunum. Rétt og góð næring gegnir lykilhlutverki þegar kemur heilsunni og í dag er ýmislegt sem getur afvegaleitt á tímum samfélagsmiðla, upplýsingaóreiðu og tískubylgna. Við töluðum við Berglindi Soffíu Ásbjörnsdóttur Blöndal, doktor í næringafræði en hún er nýráðin klínískur næringafræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Það var um nóg ræða við hana á tímum þar sem margir vita ekki hvar á finna réttar upplýsingar þegar kemur næringu.

Laufey Lín hlaut Grammy verðlaunin í Bandaríkjunum á sunnudagskvöldið, annað árið í röð og í þakkarræðunni talaði hún sérstaklega um tónlistar- og listakennslu, hún myndi ekki vera á þeim stað sem hún er í dag ef ekki væri fyrir frábæra kennara. Því var ekki úr vegi heiðra tónlistarskóla í þættinum í dag, en Tónlistarskóli Akureyrar varð 80 ára 20.janúar sl. Af því tilefni verður haldin heilmikil afmælisveisla í Hofi á laugardaginn og við heyrðum í Unu Björgu Hjartardóttur, aðstoðarskólastjóra og Aðalheiði Jónu Kolbeins Liljudóttur, framhaldsnema á fiðlu og básúnu í dag.

Svo var það vísindaspjallið, þ.e. Edda Olgudóttir var reglulega með það í Samfélaginu eftir hádegi á Rás 1, en hefur þáttur lokið göngu sinni í bili og við gripum því vísindaspjallið á lofti og hún mun koma til okkar á miðvikudögum og miðla til okkar áhugaverðu efni úr heimi vísindanna. Í fyrsta vísindaspjallinu í Mannlega þættinum talaði Edda um rannsóknir sem benda til þess þau sem fara seint sofa séu útsettari fyrir hjarta- og æðasjúkdómum en aðrir.

Tónlist í þættinum í dag:

Reykur / Helena Eyjólfs (Karl Olgeirsson og Trausti Örn Einarsson)

Wichita Lineman / Glenn Campbell (Jimmy Webb)

Silver Lining / Laufey (Lag og texti: Laufey)

Svona er ástin / Buff (Gunnar Þórðarson og Jónas Friðrik Guðnason)

UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

4. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,