Mannlegi þátturinn

Fjölmenningarþing, vinkill og Sveinn Sampsted lesandinn

Fjölmenningarþing var haldið á vegum Reykjavíkurborgar um helgina en þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna. Á þinginu var til dæmis varpað fram spurningunum: Fjölmenningarfærni - sitjum við öll við sama borð? Ert þú fjölmenningarfær? Getur góð þýðing á bókmenntum falið í sér inngildingu? Hvernig þróum við samfélagstúlkun í breyttu samfélagi? Íslenska töluð með hreim - hefur það áhrif á samskipti í daglegu lífi? Guðný Bára Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem kom fram á þinginu.

Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og vinkill dagsins var lagður við komandi forsetakosningar, frá nokkrum hliðum. Til dæmis hvernig sameiginlegur kynningarþáttur getur haft áhrif á skoðanir þeirra sem hafa kosningarétt, en líka hvaða forsendur við gefum okkur áður en uppáhaldsframbjóðandi er valinn og hvort við séum tilbúin til breyta um skoðun ef okkar manneskja stendur sig síður en aðrir í kynningu, eða hvort við höldum tryggð við fyrsta val.

Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Sveinn Sampsted íþróttafræðingur. Við fengum vita hvaða bækur hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Sveinn sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:

Uppruni (Origin á ensku) e. Dan Brown

Iron Widow e. Xiran Jay Zhao

Eldarnir e. Sigríði Hagalín Björnsdóttur

Barn Eilífu e. Sigmund Erni Rúnarsson

Andrés Önd Syrpurbækurnar frá Disney

Tónlist í þættinum í dag:

Ef ég hefði vængi / Halli Reynis og Elínrós Ben (Haraldur Reynisson)

Velkomin / Bubbi (Bubbi Morthens)

Vorið er komið / Gísli Rúnar Jónsson (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Jón Thoroddsen)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

6. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,