
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Kirstín Erna Blöndal er söngkona,tónskáld og sálgætir. Hún skrifaði í meistararitgerð sinni frá Listaháskóla Íslands um áherslu á nýjum leiðum i miðlun og tengsl tónlistar við sálgæslu og kannaði mikilvægi tónlistar í sálgæslu syrgjenda við útfarir og í sorgarferlinu. Á síðustu árum hefur hún einnig komið að kennslu og tónlistarsköpun ungra barna og fólks sem glímir við heilabilun. Kirstín Erna sagði okkur betur frá sínum störfum í dag.
Alþjóði geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10.október og af því tilefni er Geðheilbrigðisvika HR haldin þessa vikuna og er þetta tíunda árið. Þema vikunnar er „Sítengd en aftengd í heimi tækninnar“ og verður sjónum beint að áhrifum snjalltækja og skjánotkunar á líðan, samskipti og daglegt líf. Eva Rós Gunnarsdóttir og Auður Friðriksdóttir eru sálfræðingar í nemendaráðgjöf HR og þær komu í þáttinn í dag.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá nýrri rannsók sem rannsakar áhrif örveiruflórunnar á Alzheimer. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum.
Tónlist í þættinum:
Ennþá man ég hvar / GÓSS (Kai Normann Andersen, texti Bjarni Guðmundsson)
Place in the Sun / Stevie Wonder (Stevie Wonder)
Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)
Allt í fína / Karl orgeltríó, Raggi Bjarna og Ragnheiður Gröndal (Karl Olgeirsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.