• 00:05:47Kirstín Erna - tónskáld og sálgætir
  • 00:21:37Eva og Auður - Geðheilbrigðisvika HR
  • 00:35:54Edda Olgud. - um örveirur og alzheimer

Mannlegi þátturinn

Leyft öllum aldurshópum

Tónlist og sálgæsla, Geðheilbrigðisvika í H.R. og vísindaspjall um örveruflóruna og alzheimer

Kirstín Erna Blöndal er söngkona,tónskáld og sálgætir. Hún skrifaði í meistararitgerð sinni frá Listaháskóla Íslands um áherslu á nýjum leiðum i miðlun og tengsl tónlistar við sálgæslu og kannaði mikilvægi tónlistar í sálgæslu syrgjenda við útfarir og í sorgarferlinu. Á síðustu árum hefur hún einnig komið að kennslu og tónlistarsköpun ungra barna og fólks sem glímir við heilabilun. Kirstín Erna sagði okkur betur frá sínum störfum í dag.

Alþjóði geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10.október og af því tilefni er Geðheilbrigðisvika HR haldin þessa vikuna og er þetta tíunda árið. Þema vikunnar er „Sítengd en aftengd í heimi tækninnar“ og verður sjónum beint að áhrifum snjalltækja og skjánotkunar á líðan, samskipti og daglegt líf. Eva Rós Gunnarsdóttir og Auður Friðriksdóttir eru sálfræðingar í nemendaráðgjöf HR og þær komu í þáttinn í dag.

Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá nýrri rannsók sem rannsakar áhrif örveiruflórunnar á Alzheimer. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum.

Tónlist í þættinum:

Ennþá man ég hvar / GÓSS (Kai Normann Andersen, texti Bjarni Guðmundsson)

Place in the Sun / Stevie Wonder (Stevie Wonder)

Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)

Allt í fína / Karl orgeltríó, Raggi Bjarna og Ragnheiður Gröndal (Karl Olgeirsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,