• 00:06:29Ólöf Kolbrún - föstudagsgestur
  • 00:22:58Ólöf Kolbrún - seinni hluti
  • 00:38:00Matarspjallið - sítrónur og Marokkó

Mannlegi þátturinn

Ólöf Kolbrún föstudagsgestur og sítrónumatarspjall

Ólöf Kolbrún Harðardóttir óperusöngkona og skólastjóri Söngskólans í Reykjavík hefur átt langan og farsælan feril. Hún lærði söng bæði hér heima og í Austurríki og eftir námið hóf hún kennslu ásamt því koma víða fram og syngja inn á plötur. Ólöf Kolbrún er einn af brautryðjendum innan íslenska tónlistarheimsins, hún var meðal annars í hópi þeirra sem kom stofnun Íslensku óperunnar og hefur um árabil kennt við Söngskólann í Reykjavík þar sem hún gegnir starfi skólastjóra, en skólinn heldur upp á 50 ára afmæli sitt í Langholtskirkju á sunnudaginn. Ólöf Kolbrún var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag.

Sigurlaug Margrét Jónasdóttir kom svo í matarspjallið í dag. Í þetta sinn vorum við á marakóskum slóðum og þar munu meðal annars maríneraðar sítrónur komu við sögu.

Tónlist í þættinum

Rock Calypso í réttunum / Haukur Morthens (Fischer og Jón Sigurðsson)

Ég veit / Eivör Pálsdóttir (Eivör Pálsdóttir)

Íslands lag (Heyrið vella á heiðum hveri) / Garðar Cortes og Kór Langholtskirkju (Björgvin Guðmundsson og Grímur Thomsen)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Frumflutt

22. sept. 2023

Aðgengilegt til

22. sept. 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,