• 00:07:29Heilabilun - Áslaug Dröfn Sigurðardóttir
  • 00:24:00Brasilísk tónlist - Óskar Guðjónsson
  • 00:37:27Viðey - Björk Bjarnadóttir

Mannlegi þátturinn

Teepa Snow, brasilísk sveifla og Viðey

Teepa Snow er iðjuþjálfi, aðstandandi og með yfir 30 ára starfsreynslu af starfi fyrir fólk með heilabilun, bæði í beinni þjónustu og fræðistarfi. Hún heldur fyrirlestra víða um heim og er þekkt fyrir nálgun sína og lifandi aðferðir við miðla þekkingu sinni og í dag heldur Teepa fyrirlestur á Íslandi í dag á vegum samtakanna Verndrum veika og aldraða. Við fengum Áslaugu Dröfn Sigurðardóttur, aðstandanda, og meðlim í samtökunum til segja okkur meira frá Teepu og viðburðinum í þættinum í dag.

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikum og á morgun í Flóa í Hörpu koma fram Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson ásamt hljómsveit. Þegar Óskar og Ife, sem er frá Brasilíu, voru búnir vinna saman í talsvert mörg ár fundust þó nokkuð af skúffulögum í fórum Ife sem hann hafði aldrei gert neitt með. Þarna var kominn efniviður sem Óskar vildi ekki láta fara forgörðum og hafist var handa við upptökur. er platan koma út og á útgáfutónleikum verður hún leikin ásamt fleiri brasilískum lögum af þeim félögum ásamt frábærri hljómsveit. Við hringdum í Óskar í þættinum.

Við sem búum á höfuðborgarsvæðinu gleymum stundum hvað það er skemmtilegt fara útí Viðey. Á sumrin er boðið uppá dagskrá um helgar eins og td. núna á laugardaginn 1.júlí. Börnum verða sagðar þjóðsögur í Viðey í skemmtilegri náttúrugöngu og sögukonan er Björk Bjarnadóttir umhverfis- og þjóðfræðingur. Spáð verður í jurtirnar, nöfn þeirra, athugað verður hvort það fylgi þeim einhver þjóðtrú, nytjar þeirra skoðaðar og fjallað um lækningamátt þeirra. Við heyrðum í Björk í þættinum.

Tónlist í þættinum:

Rock Calypso í réttunum / Haukur Morthens (erlent lag /Jón Sigurðsson)

Southern cross / Crosby Stills and Nash (Stephen Stills, Michael Curtis og Richard Curtis)

Nao Tem Misterio / Ife Tolentino (Ife Tolentino)

Austurstræti / L?amour Fou (Þórhallur Sigurðsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

27. júní 2023

Aðgengilegt til

26. júní 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,