• 00:09:22Kristbjörg og Sigrún - ADHD á kvennamáli
  • 00:33:48Þóranna Björnsdóttir - Twisted Forest í Heiðmörk

Mannlegi þátturinn

ADHD og konur og ævintýri í Heiðmörk

Við fræddumst um ADHD og konur í þættinum í dag. Rannsóknir frá nágrannalöndum okkar sýna 50-70% stúlkna eru án greiningar og mjög margar konur greiningu fyrst á fullorðinsaldri. ADHD einkenni sem eru ógreind og ómeðhöndluð geta haft miklar og neikvæðar afleiðingar á líf kvenna, félagsleg samskipti og sjálfsmynd. ADHD á kvennamáli er heiti á nýju námskeiði sem ADHD markþjálfarnir Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir og Sigrún Jónsdóttir bjóða uppá. Þar er lögð áhersla á skoða ADHD á jákvæðan hátt og horfa til styrkleika, tækifæra og sjálfsmildis. Kristbjörg og Sigrún komu í þáttinn í dag.

Svo fjölluðum við um þáttöku- og upplifunarverk sem hefur göngu sína í Heiðmörk um helgina þar sem þáttakendum er boðið í eins konar listræna útgáfu af hlutverkaspili sem er lýst sem völundarhúsi af ólíkum upplifunum í skóginum. Þóranna Björnsdóttir, tónskáld, er ein þeirra sem standa þessu verki sem kallast Twisted Forest. Þóranna sagði okkur betur frá í þættinum í dag.

Tónlist í þætti dagsins:

Musik skal byggas utav gledje / Lill Lindfors (Björn Barlach og Anders Ekdahl)

Leiðin okkar allra / Hjálmar (Þorsteinn Einarsson og Einar Georg Einarsson)

Knowing me knowing you /Kristjana Stefánsdóttir (Benny Anderson, Björn Ulvaeus og Stig Anderson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

22. ágúst 2023

Aðgengilegt til

22. ágúst 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,