• 00:07:51Föstudagsgesturinn Viktoría Hermannsd.
  • 00:24:12Viktoría Hermannsd. - seinni hluti
  • 00:37:33Campbells matarspjall - Sigurlaug Margrét

Mannlegi þátturinn

Viktoría Hermanns föstudagsgestur og Campbells matarspjall

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Viktoría Hermannsdóttir. Hún hefur auðvitað gert fjölbreytt efni fyrir útvarp og sjónvarp talsvert lengi og hún er einstaklega fundvís á áhugaverða viðmælendur og áhugaverðar sögur fólks. á sunnudaginn hefur önnur þáttaröð heimildarþáttanna Hvunndagshetjur göngu sína í sjónvarpinu. Í þáttunum eru sagðar einstakar sögur fólks sem hefur látið gott af sér leiða á óeigingjarnan hátt í gegnum starf sitt eða daglegt líf. Við fengum Viktoríu til segja okkur aðeins frá nýju þáttunum og auðvitað líka til segja okkur frá sjálfri sér, eins og venjan er með föstudagsgesti í þættinum.

Svo var það auðvitað matarspjallið, Sigurlaug Margrét Jónas kemur til okkar í dag og við héldum áfram velta Campbells súpum fyrir okkur, eftir þær komu upp í matarspjallinu í síðustu viku með Sigurði Þorra Gunnarssyni. Þessar dósasúpur eru nefnilega notaðar á mjög margvíslegan hátt í alls konar uppskriftir og matargerð.

Tónlist í þættinum

Ekkert þras / Egill Ólafsson, Lay Low, Högni Egilsson og Moses Hightower (Egill Ólafsson)

Jive Talkin? / Bee Gees (Barry Gibb, Maurice Gibb & Robin Gibb)

Upside Down / Diana Ross (Bernard Edwards & Nile Rodgers)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

8. sept. 2023

Aðgengilegt til

8. sept. 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,