Mannlegi þátturinn

Gleym mér ei, Tjarnarbíó og veðurtungl

Við kynntum okkur starfsemi Gleymmérei styrktarfélags sem er til staðar fyrir þau sem verða fyrir missi á meðgöngu og í eða eftir fæðingu. Félagið er á sínu tíunda starfsári og framundan eru til dæmis samverustundir í Sorgarmiðstöðinni annan hvern fimmtudag í haust. Þær Ingunn Sif Höskuldsdóttir, stjórnarformaður Gleymmérei og Hólmfríður Anna Baldursdóttir, sem situr í stjórn félagsins, komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um starfsemina, samverustundirnar og árlega minningarstund sem verður haldin 15.október.

Við héldum áfram í dag fara yfir leikveturinn sem er hefjast. Í þetta sinn kom til okkar Sara Martí Guðmundsdóttir leikhússtjóri í Tjarnarbíói. Hún sagði okkur frá því hvað verður á döfinni í Tjarnarbíói í vetur, þar sem frjálsu leik- og sviðlistahóparnir hafa blómstrað.

Og svo lokum heyrðum við í Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðingi sem í dag var stödd í Malmö í Svíþjóð en þar þinga veðurfræðingar víðs vegar úr heiminum. Þar er til dæmis verið skoða það nýjasta í veðurtunglum og hvernig þau nýtast veðurfræðingum.

Tónlist í þættinum

Pólstjarnan / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Ágúst Pétursson og Kristján frá Djúpalæk)

Gong-oh / Paolo Conte (Paolo Conte)

Che cossè l'amor / Vinicio Caposella (Vinicio Caposella)

Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Þórður Árnason)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

12. sept. 2023

Aðgengilegt til

12. sept. 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,