Föstudagsgesturinn okkar var kvikmyndagerðarmaðurinn Gísli Snær Erlingsson sem hefur nýlega verið skipaður forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Gísli Snær hefur starfað við leikstjórn um árabil og leikstýrði meðal annars kvikmyndunum Ikíngut (2000) sem hefur verið seld til 59 landa og Benjamín dúfu (1995). Hann var ráðinn sem skólastjóri Kvikmyndaskóla Lundúna árið 2016 og lét af störfum þar á síðasta ári. Hann bjó lengi og starfaði í Japan og hefur marga fjöruna sopið í kvikmyndabransanum. Við töluðum við Gísla um lífið og tilveruna, ferilinn,Skaupið 1988 þegar leikurum var sagt að sniðganga Skaupið og hvernig hann áttaði sig á því að hann hefði farið í kulnun.