Mannlegi þátturinn

Kjarahópur eldri borgara, jeppavinkill og Fríða lesandinn

Nýlega var stofnaður kjarahópur á vegum Félags eldri borgara á Akureyri en hópnum er ætlað vinna framgangi kjaramála félagsmanna á Akureyri og hafa áhrif á stefnu Landssambands eldri borgara er varðar réttinda- og kjaramál. Formaður hópsins er Björn Snæbjörnsson, fyrrverandi formaður Starfsgreinasambandsins og fyrrverandi formaður stéttarfélagsins Einingar-Iðju. Björn var gestur Mannlega þáttarins í dag og sagði betur frá markmiðum og tilgangi hópsins.

Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga, eins og flesta mánudaga. Í dag lagði Guðjón vinkilinn við jeppamenningu og almenningssamgöngur í þéttbýli.

Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Fríða Brá Pálsdóttir sjúkraþjálfari. Við fengum vita hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur eða höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Fríða Brá talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

telja upp í milljón e. Önnu Hafþórsdóttur

Tough Women, adventure stories, ritstj. Jenny Tough

A little life e. Hanya Yanagihara

The Neurobiology of We e. Daniel Siegel

Thru Hiking Will Break Your Heart e. Carrot Quinn

Tónlist í þættinum

Ennþá man ég hvar / Góss (Andersen & Dam, ísl.texti Bjarni Guðmundsson)

Komdu í kvöld / Ragnar Bjarnason (Jón Sigurðsson)

Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, Danpa, Sciorilli, Bonagura, ísl. Texti Jón Sigurðsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Frumflutt

25. sept. 2023

Aðgengilegt til

25. sept. 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,