Mannlegi þátturinn

Fann alsystur sína í Oregon, Ævintýragarður Hreins og Söguboð

Við fengum í dag mæðgurnar Kristínu Valdemarsdóttur og Karólínu Ágústsdóttur í heimsókn til okkar. Þær deildu með okkur sögunni af því þegar Karólína, 15 ára, fann líffræðilega alsystur sína sem er 18 ára og býr í Bandaríkjunum, eftir hafa sent DNA próf í alþjóðlegan gagnabanka. Þær voru báðar ættleiddar frá Kína og vissu ekkert hvor af annarri, áður en þær í sitt hvoru lagi prófuðu nýta sér þessa þjónustu í von og óvon án þess vita við hverju mætti búast. Þær Karólína og Kristín sögðu okkur þessa fallegu og áhrifaríku sögu í þættinum.

Við litum svo við í Ævintýragarði alþýðulistamannsins Hreins Halldórssonar við Oddeyrargötuna á Akureyri en þar finna ýmsar ævintýraverur sem Hreinn hefur skapað, mest úr timbri en líka gömlum verkfærum, krönum, skápahandföngum og tannburstum, til nefna nokkur dæmi. Við hittum Hrein og ræddum við hann um hugsunina á bak við Ævintýragarðinn.

Í dag er alþjóðadagur flóttafólks og þau Árni Kristjánsson, ungliða- og aðgerðastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, og Gígja Svavarsdóttir, framkvæmdarstjóri tungumálaskólans Dósaverksmiðjunnar komu í þáttinn og sögðu okkur frá Söguboði, eða Story Sharing Café, sem fram fer í dag kl.17 í Húsi Máls og menningar á Laugaveginum. Tilgangur viðburðarins er gefa öllum tækifæri, óháð þjóðerni, trú, kyni eða stöðu, til setjast saman við borð og deila hversdagslegum sögum og heyra sögur annarra. Viðlíka viðburðir hafa verið haldnir víða um heim til sporna við fordómum og einblína á hið sammannlega í fari okkar. Þau Árni og Gígja sögðu okkur frekar frá Söguboðinu í þætti dagsins.

Tónlist í þættinum:

Undir stórasteini / Út í vorið (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason)

Inni í eyjum / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason)

Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)

Stories To Tell / Krummi (Oddur Hrafn Björgvinsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Frumflutt

20. júní 2023

Aðgengilegt til

19. júní 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,