• 00:06:29ÁLFkonur
  • 00:18:01Saga Sjómannafélags Ólafsfjarðar
  • 00:29:18Plötusafnarinn Hafsteinn

Mannlegi þátturinn

Plötusafnarinn í Miðkoti, ÁLFkonur og Sjómannafélag Ólafsfjarðar

Við keyrðum til Dalvíkur og heimsóttum Hafstein Pálsson bónda í Miðkoti sem meirihluta ævi sinnar hefur safnað allri íslenskri útgáfu á plötum, diskum og kassettum. Þetta er stærðarinnar safn og margir krókar og kimar á heimilinu eru fullir af þessum dýrmæta fjársjóði, frá gólfi uppí loft sumsstaðar. En er hann hættur safna og komin tími til segir hann.

Hópurinn ÁLFkonur er áhugaljósmyndarafélag fyrir konur sem hefur ljósmyndun áhugamáli. Það er árlegur viðburður hjá þeim sýna ljósmyndir sínar fyrir gesti og gangandi í Lystigarðinum á Akureyri og þessu sinni er það vetrarríkið sem birtist í verkum þeirra - frost og kuldi í sólinni og gróðrinum í Lystigarðinum. Við fengum til okkar tvær ÁLFkonur, þær Agnesi Heiðu Skúladóttur og Ingu Dagnýju Eydal .

Það var mikið um dýrðir á Ólafsfirði um sjómannadagshelgina enda fagnar Sjómannafélag Ólafsfjarðar 40 ára afmæli sínu í ár. Af því tilefni var gefin út vegleg afmælisbók þar sem farið er yfir sögu félagsins í máli og myndum og bókinni var fyrir helgi dreift til allra heimila á Ólafsfirði. Atli Rúnar Halldórsson er höfundur bókarinnar og hann kom og sagði okkur frá viðtökunum og hvernig var skrásetja þessa umfangsmiklu sögu.

Frumflutt

6. júní 2023

Aðgengilegt til

6. júní 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,