Mannlegi þátturinn

Listir og velferð, Hamingjugildran og Hvað er að vera Íslendingur?

Við kynntumst nýju meistaranámi í Listum og velferð hjá Listaháskólanum í þættinum í dag. Þar verður leitt saman fagfólk innan lista- og velferðargeirans sem hafa áhuga á þróa leiðir til nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar. Kristín Valsdóttir, deildarforseti listkennsludeildar LHÍ, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu námi í dag.

Bókin Hamingjugildran kom út fyrir nokkrum dögum í íslenskri þýðingu. Bókin heitir á ensku Happiness Trap. Sálfræðingurinn Hugrún Sigurjónsdóttir þýddi og hefur sjálf notað aðferðir bókarinnar í meðferðarvinnu með skjólstæðingum með góðum árangri. Í bókinni, sem selst hefur í yfir milljón eintökum um allan heim, er finna einföld og gagnleg ráð til takast á við erfiðar hugsanir og tilfinningar. Einnig er leitað svara í bókinni við þeirri grundvallarspurningu af hverju það svona erfitt vera hamingjusamur og hvers vegna hamingjan geti ekki verið varanlegt ástand? Við töluðum við Hugrúnu í dag.

Hvað er vera Íslendingur? Þeirri spurningu var reynt svara á fræðslufundi sem Íslensk erfðagreining stóð fyrir um helgina. 4 fyrirlesarar veltu fyrir sér þessari spurningu meðal annars út frá erfðum og nýjustu rannsóknum á uppruna okkar Íslendinga. Stangast hugmyndir þjóðarinnar, um uppruna sinn, ef til vill á við uppgötvanir á sviði mannerfðafræði? Einnig var því velt upp hvenær fólk verði Íslendingar, ef það á rætur í öðrum samfélögum. Tveir þeirra sem héldu erindi, Agnar Helgason, mannerfðafræðingur og Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, komu í þáttinn og hjálpuðu okkur svara þessum spurningum.

Tónlist í þættinum í dag:

Við arineld / Erla Stefánsdóttir (Magnús Eiríksson-Kristján frá Djúpalæk)

Everything is beautiful / Ray Stevens (Ray Stevens)

Vor / Eyfi og Ellen (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)

Chok Chok / PPCX

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

3. maí 2023

Aðgengilegt til

3. maí 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,