Mannlegi þátturinn

Ráðstefna Sigurhæða, VIRK 15 ára og veðurspjallið

Sigurhæðir, þjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi, stendur fyrir ráðstefnu 25. og 26. maí undir yfirskriftinni sókn gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi. Þar verður áherslan lögð á stefnumótun og eflingu þjónustu við þolendur, en margir helstu sérfræðingar landsins í þessu málefni koma þar fram og flytja erindi. Ein af þeim er Kristín Anna Hjálmarsdóttir, kynjafræðingur, en hún kom í þáttinn í dag og fræðir okkur um skýrslu og úttekt sem verður kynnt á ráðstefnunni þar sem þolendamiðstöðvarnar þrjár, Bjarkarhlíð, Bjarmahlíð og Sigurhæðir, eru greindar, styrkleikar, veikleikar, ógnir og tækifæri. Og svo stikluðum við á stóru með Kristínu Önnu um hvað annað verður á dagskrá ráðstefnunnar.

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður fagnar 15 ára afmæli á árinu og í tilefni af því mun VIRK m.a. standa fyrir ráðstefnu í Silfurbergi í Hörpu miðvikudaginn 31. maí þar sem fókusinn verður settur á endurkomu einstaklinga inn á vinnumarkað eftir veikindi eða slys og hvað fyrirtæki og stofnanir geti gert til þess auðvelda það ferli. Jónína Waagfjörð, sviðsstjóri ráðgjafar og atvinnutengingar VIRK kom í þáttinn í dag.

Elín Björk Jónasdóttir kemur í vikulega veðurspjallið í dag. Það er ekki hægt segja það komið brakandi sumarblíða ennþá, gular viðvaranir um allt land, en það er spurning hvað er framundan í kortunum.

Tónlist í þættinum í dag:

Speak low / Bogomil Font (Kurt Weil og Ogden Nash)

Dalakofinn / Karl Orgeltríó (Archibald Joyce)

Manhattan / Ella Fitzherald (Richard Rodgers og Laurenz Hart)

Ob-la-di, ob-la-da / The Beatles (Lennon & McCartney)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

23. maí 2023

Aðgengilegt til

23. maí 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,