Ljósmyndaverkefni á Minjasafni Akureyrar, Þín leið og veðurspjall
Minjasafnið á Akureyri hefur að undanförnu staðið fyrir vinsælum sýningum á verslunarsögu Akureyrar fram að síðustu aldamótum, og þar hafa ljósmyndir frá liðinni tíð leikið stórt hlutverk. Nú hefur safnið gert samstarfssamning við Áhugaljósmyndaraklúbb Akureyrar um að taka myndir af verslunum dagsins í dag svo safnafólk framtíðarinnar geti gengið í sögulegar heimildir þegar fram líða stundir. Við ræddum þetta framtak við Harald Þór Egilsson safnstjóra Minjasafnsins.
Þögnin er í útrýmingarhættu segir Hrönn Baldursdóttir náms- og starfsráðgjafi en hún hefur einnig starfað sem gönguleiðsögumaður og hefur verið að tvinna þetta saman í nokkur ár með því að fá fólk út í náttúruna til að fá meira næði til að íhuga sjálfa sig og sína nútíð og framtíð. Við ræddum við Hrönn og forvitnumst í leiðinni um nokkuð sem kallast ?Þín leið? þar sem hún styður fólk við að finna sína leið í lífinu.
Við ræddum um veðrið við Elínu Björk Jónasdóttur en hún segir í frétt á mbl.is að um hræðileg gröf sé að ræða þegar skoðaðar eru mælingar frávika í yfirborðshitastigi sjávar. Hún segir mælingarnar benda til þess að sjórinn sé ofboðslega hlýr, en það geti valdið vandræðum víða um Evrópu. Á Íslandi birtist það helst í aukinni rigningu.
Tónlistin í þættinum:
In the summertime/Mungo Jerry(erl)
You can't make old friends/Dolly Parton og Kenny Rogers(erl)