Mannlegi þátturinn

Sjúkt spjall, hláturjóga og Fílalag í sjónvarpinu

Fyrir rétt rúmu ári opnaði Stígamót nýja þjónustu sem heitir Sjúkt spjall en það er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni 13-20 ára um sambönd, samskipti og ofbeldi. Algengast er börn og unglingar velti fyrir sér hvort þau hafi orðið fyrir o?eldi, jafnvel nauðgun. Í spjallinu eru unglingar fræddir t.d. um samþykki og mörk í samskiptum. Birta Ósk Hönnudóttir, verkefnastýri Sjúks spjalls, kom til okkar í dag sagði okkur frá þjónustunni.

Alþjóðlegi hláturdagurinn er á sunnudaginn, 7.maí, og hér á landi hefur Ásta Valdimarsdóttir verið leiðandi afl í hláturjóga og ber einnig titilinn hláturambassor. Hláturjóga er stundað víða um heim en líklega mest á Indlandi og þar býr upphafsmaður þess Dr. Madan Kataria. Rannsóknir hafa sýnt einlægur hlátur bætir andlega og líkamlega heilsu og best er stunda hláturjóga í hópi. Við heyrðum í Ástu í þættinum í dag.

Svo komu þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi Benediktsson til okkar í dag. Þeir eru með sjónvarpsþáttinn Fílalag, en þeir höfðu gert á fjórða hundrað hlaðvarpsþætti af Fílalag áður en þeir hófu gera þættina fyrir sjónvarp. Í hverjum þætti taka þeir fyrir eitt lag og fíla það. Með öllu sem því fylgir. Skoða tímabilið sem lagið er frá, tískuna, stemninguna og reyna miðla sinni ástríðu og fílun til áhorfenda.

Tónlist í þættinum í dag:

My friend and I / Trúbrot (Magnús Kjartansson og Jóhann Hjálmarsson

Girl from before / Blood Harmony (Örn Eldjárn)

Það brennur / Egill Ólafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir (Egill Ólafsson)

Þrek og tár / Erla Þorsteinsdóttir og Haukur Morthens (Otto Lindblad og Guðmundur Guðmundsson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

4. maí 2023

Aðgengilegt til

4. maí 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,