Mannlegi þátturinn

Magni Ásgeirsson föstudagsgestur

vanda fengum við til okkar föstudagsgest, sem þessu sinni var Magni Ásgeirsson tónlistarmaður. Magni hefur fengist við tónlist frá unga aldri og hefur á ferli sínum spilað á ótal böllum og haldið tónleika um allt land, sérstaklega með hljómsveitinni Á móti sól. Hann öðlaðist síðan frægð utan landsteinanna þegar hann tók þátt í raunveruleikakeppninni Rock Star Supernova þar sem hann hafnaði í fjórða sæti.

Magni er landsbyggðarmaður í húð og hár, alinn upp á Borgarfirði Eystri en er í dag búsettur á Akureyri með fjölskyldu sinni. Magni kom til okkar og við rýndum í fortíð, nútíð og framtíð. Og svo var Magni áfram með okkur í Matarspjalli dagsins.

Heim/Magni Ásgeirsson (Magni Ásgeirsson-Ásgrímur Ingi Arngrímsson)

- Barn m. Ragga Bjarna (Ragnar Bjarnason-Steinn Steinarr)

- Stjörnublik : Á móti sól

Frumflutt

9. júní 2023

Aðgengilegt til

9. júní 2024
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins.

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,