Kvöldfréttir

Samningar, hækkun heitavatns, geðdeild SAk, Samherji og Trump

Ríkissáttasemjari hefur lagt fram tillögu um lausn á kjaradeilu VR og Samtaka atvinnulífsins. Það kemur í ljós í kvöld hvort hún verður samþykkt.

Heitavatnið í Eyjum er mun dýrara en áður en ekki jafn heitt. Heimamenn kvarta og segja breyta verði regluverkinu svo fólk á köldum svæðum sitji við sama borð og aðrir landsmenn.

Mannekla og óhentugt húsnæði standa helst í vegi fyrir þeim úrbótum á Geðdeild Akureyrar, sem umboðsmaður Alþingis kallar eftir.

Namibíski dómarinn Moses Chinhengo hefur neitað segja sig frá Samherjamálinu í Namibíu þrátt fyrir ásakanir um hlutdrægni í málsmeðferð sinni.

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti einn slasaðan á Landspítala eftir bílveltu á veginum á milli Langjökuls og Gullfoss síðdegis.

Dómari í Georgíuríki í Bandaríkjunum hefur fellt niður sex ákæruliði í máli Donalds Trump, fyrrum bandaríkjaforseta um afskipti hans af úrslitum forsetakosninganna árið 2020.

Bandaríkjaþing hótar loka Tik Tok í Bandaríkjunum, verði samfélagsmiðillinn áfram í eigu kínverska ríkisins.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Alexander Kristjánsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

13. mars 2024

Aðgengilegt til

13. mars 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,