Kvöldfréttir

Vopnahlé á Gaza framlengt og uggur vegna sívaxandi vopnaburðar

27. nóvember 2023

Lögregla er uggandi vegna mikils hnífaburðar, hún jók viðbúnað eftir skotárás í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar og er svo enn.

Vopnahlé á Gaza var síðdegis framlengt um tvo daga.

Tæknifyrirtækið Controllant hefur sagt upp áttatíu starfsmönnum. Verkefnum hjá fyrirtækinu hefur fækkað eftir Covid.

Þingmaður Pírata, hefur beðist afsökunar á framgöngu sinni á skemmtistaðnum Kíkí í miðborg Reykjavíkur um helgina.

Á hverju ári berast um þrjár til fjórar frásagnir af þvinguðum ófrjósemisaðgerðum fatlaðra kvenna segir Eiríkur Smith réttargæslumaður fatlaðra.

Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík telur öryggistilfinning bæjarbúa hafi ekki rofnað við þjófnað í bænum fyrr í mánuðinum. Rannsókn lögreglunnar er í fullum gangi.

Ferðir fjölskyldu framkvæmdastjóra íslensks fyrirtækis á Evrópumótið í Frakklandi 2016 eru ekki frádráttarbærar frá skatti. Yfirskattanefnd hafnar því ferðirnar hafi verið hluti af markaðsstarfi fyrirtækisins.

Færeyski hesturinn er náskyldur þeim íslenska en eilítið smávaxnari - og stofninn er hverfa. Innan við eitt hundrað færeysk hross eru lifandi í dag, og eru þá geldhross meðtalin. Jona Olavsdóttir, formaður félagsins Føroysk ross segir allt stefna í stofninn deyi út og krefur landstjórnina um skjótar aðgerðir.

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Frumflutt

27. nóv. 2023

Aðgengilegt til

26. nóv. 2024
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,