Kvöldfréttir

Grindavík, sprunga við Búrfellsgjá, Trump og Þjóðarópera.

Grindvíkingum er heimilt dvelja allan sólarhringinn í bænum, en hver sem fer inn í bæinn gerir það á eigin ábyrgð. Linda Blöndal fréttakona fór á íbúafund í Laugardalshöll og og Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarinnar Vísis, segir komið því kveikja ljósin í bænum.

Sprunga við Búrfellsgjá, sem kona féll í í gær er nokkuð utan við göngustíga. Sprungan var ómerkt þegar slysið varð en hefur verið merkt með keilum. Rætt við Lárus Steindór Björnsson, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur, samskiptastjóra Garðabæjar.

Fyrrverandi Bandaríkjaforseti notaði andlát rússneska stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnys til segja hvað honum finnst athugavert við bandarísk yfirvöld. Hann hafði verið gagnrýndur fyrir tjá sig ekki um andlátið.

12 einsöngvarar verða í fullu starfi, og óperustjóri verður skipaður til fimm ára í senn, samkvæmt frumvarpi um stofnun Þjóðaróperu.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

19. feb. 2024

Aðgengilegt til

18. feb. 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,