Kvöldfréttir

Grindavík fer af neyðarstigi á hættustig, vopnahlé á Gaza á morgun

22. nóvember 2023

Almannavarnastig vegna jarðhræringa í Grindavík fer af neyðarstigi niður á hættustig á morgun. Líkur á gosi innan bæjarmarka í Grindavík eru taldar litlar þó enn líkur á gosi yfir kvikuganginum segir Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunar á Veðurstofu Íslands.

Aðgangur Grindavík verður rýmkaður og bærinn verður opinn íbúum og fjölmiðlum en ekki almenningi.

Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Fjögurra sólarhringa vopnahlé gengur í gildi í fyrramálið, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna segir fjórir dagar dugi ekki til bjarga lífi barna á Gaza.

Rúmlega helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af náttúruhamförum. Konur eru frekar uggandi en karlar samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups.

Stjórnendur Sjúkratygginga þekkja ekki þann sjúkdóm sem þeir hafa sett ströng skilyrði um vegna kostnaðar við lyf, segir Erla Gerður Sveinsdóttir sérfræðilæknir í offitulækningum. Flókin efnaskipti valdi offitu en ekki lífstíll.

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

22. nóv. 2023

Aðgengilegt til

21. nóv. 2024
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,