Kvöldfréttir

Verkfall flugumferðarstjóra, stríð á Gaza, Ólafsfjarðarmálið

Flugumferðarstjórar funda enn með fulltrúum Isavia og Samtaka atvinnulífsins. Verkfall flugumferðarstjóra hefst klukkan fjögur í fyrramálið náist samningar ekki, og stendur til tíu.

Utanríkisráðherra telur það þjóni engum tilgangi fyrir Ísland grípa einhliða til þvingunaraðgerða gagnvart Ísrael. Slíkar aðgerðir hafi mest áhrif þegar samtakamáttur ríkja er nýttur.

Vitnisburður ekkju Tómasar Waagfjörð, mannsins sem lést í heimahúsi á Ólafsfirði í október í fyrra, var spilaður í dómssal í dag. Hún er látin en var lykilvitni í málinu. Andlát hennar er ekki talið hafa borið með saknæmum hætti.

Framkvæmdir standa yfir við ofanflóðavarnir á Seyðisfirði, Siglufirði og Patreksfirði. Fjöldi annarra verkefna er í pípunum og bráðum á bjóða varnir í Neskaupstað út. eftir ríkisstjórnin ákvað flýta framkvæmdum þar.

Það voru mistök taka ekki upp aðgerðaáætlun forsætisráðherra gegn hatursorðræðu fyrr á þessu ári eins og til stóð, segir forstöðumaður Menntaseturs lögreglu.

14 ára drengur hneig niður um helgina eftir hafa drukkið tvo koffínríka gosdrykki sem hann keypti sjálfur. Sérfræðingur í eiturefnafræði á Landspítala segir dæmi um leggja hafi þurft smábörn inn á bráðamótttöku eftir þau innbyrtu orkudrykki.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

11. des. 2023

Aðgengilegt til

10. des. 2024
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,