Kvöldfréttir

Gosvarnir á Reykjanesskaga, kjaramál og pestir

Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir allt benda til stutt í næsta eldgos á Reykjanesskaga. Hann segir mikilvægt huga varnargörðum víðar en þar, til dæmis í grennd við höfuðborgarsvæðið.

Fyrsti fasi varnargarðanna við Grindavík ætti verða tilbúinn eftir um tvær vikur. Ari Guðmundsson verkfræðingur segir garðarnir veiti strax mikilvægt viðbragð, þótt áætlanir séu til um miklu stærri garða.

Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, dvaldi í fjóra daga á gjörgæslu án þess Bandaríkjaforseti vissi af því. Þingmenn Repúblikanaflokksins krefjast afsagnar ráðherrans.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins segist finna vilja hjá sveitarfélögum til leggja sitt af mörkum til saman gangi í kjaraviðræðum. Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir mikinn skilning ríkja milli aðila.

Neytendasamtökin segja gera verði þjóðarsátt um almenningi verði tryggð raforka á hagstæðu verði segir formaðurinn, Breki Karlsson.

Mikið er um öndunarfærasýkingar, sem veldur álagi á heilbrigðiskerfið, sögn Guðrúnar Aspelund sóttvarnalæknis. Andlát vegna covid eru skráð í hverjum mánuði, en hér geisar þó enginn covid-faraldur, segir Guðrún.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

8. jan. 2024

Aðgengilegt til

7. jan. 2025
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,