Kvöldfréttir

Úkraína í aðildarviðræður, sambandslaust á Gaza, Biblían á hljóðbók

Úkraínu hefur verið boðið til aðildarviðræðna við Evrópusambandið - þetta var ákveðið á fundi leiðtogaráðs ESB skömmu fyrir fréttir.

Hvorki net- símasamband er á Gaza vegna loftárása Ísraela. Eymd og örvænting íbúa eykst og margir hafa ekki neytt matar í nokkra daga.

Samningafundi flugumferðarstjóra við Samtök atvinnulífsins lauk á sjötta tímanum í dag. Nýr fundur hefur verið boðaður klukkan tíu í fyrramálið. Formaður Félags flugumferðastjóra segir stöðuna erfiða.

Hörð mótmæli gegn einstaka stjórnmálamönnum og fjölskyldum þeirra geta fælt fólk frá lýðræðislegri umræðu segir forsætisráðherra. Þótt hún hafi sjálf orðið fyrir aðkasti vonar hún æðstu embættismenn geti áfram gengið um götur án löggæslu.

Eftirlit hefur verið hert við bænahús og samkomustaði gyðinga í Danmörku. Þrír menn voru handteknir í dag, grunaðir um undirbúa hryðjuverk. fjórði var tekinn höndum í Hollandi.

Frumflutt

14. des. 2023

Aðgengilegt til

13. des. 2024
Kvöldfréttir

Kvöldfréttir

Kvöldfréttir útvarps

Þættir

,